Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10469
Ritgerðin fjallar um upplifanir átta ungmenna, sem á tímabilinu 1994-2010 voru skjólstæðingar Barnaverndar Kópavogs, á þeim stuðningi sem þeim var veittur. Einnig var skoðaður jarðvegur þeirra tengsla sem þau ólust upp við en rannsóknarniðurstöður eru skoðaðar í ljósi tengsla-, hamingju- og vellíðunarkenninga. Um er að ræða eigindlega rýnihóparannsókn.
Niðurstöður benda til þess að jákvæðar upplifanir af barnaverndarafskiptum tengdust samráði og trausti en neikvæðar upplifanir tengdust þvingun, valdbeitingu, vantrausti og óöryggi í vinnslu þeirra mála hjá Barnavernd Kópavogs. Ungmennin upplifðu að sá stuðningur sem veittur er í barnaverndarúrræðum sé ekki fullnægjandi auk þess sem eftirmeðferð og fjölbreytni í meðferðarúrræðum er ábótavant. Þá gáfu niðurstöður einnig til kynna að jarðvegur til innihaldsríkrar tengslamyndunar var ekki til staðar hjá flestum ungmennanna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA-ritgerð. Hvar á ég heima_ hver hlustar á mig.pdf | 2.1 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Athugasemd við höfundarrétt kemur á sér blaði þegar ritsmíð er skilað inn í prentuðu formi.