is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10504

Titill: 
  • Stefnumótun stjórnvalda í hvalveiðum og hvalaskoðun á Íslandi
  • Titill er á ensku Government policy on whaling and whale watching in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hvalaskoðun með leiðsögn hófst á Íslandi árið 1995. Hvalveiðar hafa verið stundaðar við Íslandsstrendur frá upphafi byggðar. Togstreita á milli þessara atvinnugreina hefur verið til staðar síðan hvalaskoðun hófst og hefur skörun á nýtingu auðlindarinnar skapað miklar deilur. Enn fremur eru deilur um hvalveiðar tengdar ímynd Íslands sem ferðamannastaðar og útflutningsvöru sem hvoru tveggja byggir á umhverfisvænni ímynd. Stjórnvöld hafa sett fram stefnumörkun um nýtingu hvalastofna og á undanförnum áratugum hafa þau lagt í vinnu til að sætta ólík sjónarmið hagsmunaaðila, meðal annars með rannsóknum, skýrsluskrifum og setningu reglugerða. Byggir stefnumörkun íslenskra stjórnvalda ennfremur á sjálfbærri nýtingu og þeim viðmiðum og áherslum sem sett hafa verið í samningum á alþjóðavettvangi.
    Ljóst er þó að þrátt fyrir skýrsluskrif, rannsóknir og reglugerðir, þá hefur stjórnvöldum ekki tekist að skapa sátt um nýtingu hvalastofna við Ísland. Áhrif hvalveiða á ferðaþjónustu á Íslandi virðast enn óveruleg en erfitt er að segja til um hversu lengi það muni endast. Hvalaskoðunarfyrirtæki hafa af þessu miklar áhyggjur og segja stefnu stjórnvalda í hvalveiðimálum óásættanlega.

Samþykkt: 
  • 11.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10504


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSc11012012.pdf902.86 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna