Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10509
Með þessari rannsókn er ætlunin að skoða hvers vegna hjólhýsahverfið á Laugarvatni hefur notið aukinna vinsælda á undanförnum árum. Skoðuð voru sérstaklega þau áhrif sem ör stækkun hefur haft á samfélag hverfisins. Í því skyni er bæði samfélag og rými hverfisins skoðað í ljósi hugmynda og kenninga sem gjarnan eru notaðar innan þjóðfræðinnar. Rannsóknin er að mestu byggð á viðtölum við sjö einstaklinga sem koma að hjólhýsahverfinu með einum eða öðrum hætti. Efninu er skipt niður í þrjá kafla auk inngangs og niðurlags. Fyrsti kaflinn fjallar um innreið hjólhýsanna í íslenskt samfélag og upphaf og mótun hverfisins á Laugarvatni. Annar kafli fjallar um rými og hvaða áhrif stækkun hverfisins hefur haft á rými og umhverfi þess. Þriðji kafli fjallar um það samfélag sem byggir hverfið og hvernig íbúarnir hafa tekið á þeim vandamálum sem fylgt hafa stækkun hverfisins. Þar er einnig fjallað um sjálfsmynd hópsins og viðleitni íbúanna til að viðhalda henni og styrkja.
Helsta niðurstaða þessarar rannsóknar er sú að í hjólhýsahverfinu á Laugarvatni sækir fólk í náin tengsl við annað fólk þar sem hverfið hefur það hlutverk að sameina bæði fólk og fjölskyldur. Í kjölfar örar stækkunar og aukins þéttleika hverfisins hafa íbúar fundið fyrir meiri þörf fyrir að afmarka einkarými og á sama tíma fundist þörf á að styrkja og viðhalda sjálfsmynd hópsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_Forsíða.pdf | 56.23 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Heildartexti.pdf | 1.57 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |