is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10531

Titill: 
  • Aðstaða kvenna í fangelsum á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hér verður fjallað um aðstöðu kvenna í fangelsum hér á landi. Femínískar kenningar gera grein fyrir að konur verða fyrir ójöfnuði vegna kyns síns, og að þær skulu öðlast sömu réttindi og tækifæri jafnt og karlar. Hlutfall kvenna í fangelsum er mjög lágt en þeim fer þó fjölgandi. Rúm 7% fanga sem ljúka afplánun hér á landi ár hvert eru konur. Helstu brot sem konur afplána fyrir eru auðgunarbrot þó eru fíkniefnabrotum að fjölga. Rannsóknir sýna að konur eiga almennt við meiri félags- og heilbrigðisvanda en karlar sem fremja afbrot. Konum hér á landi býðst einungis að afplána dóma sína í einu fangelsi á höfuðborgarsvæðinu, á meðan karlar geta afplánað í fimm fangelsum við mismunandi aðstæður. Aðstæður kvenna í fangelsum hér á landi eru ekki þær sömu og aðstæður karla, þar má nefna möguleika til vinnu, afþreyingar, staðsetningar og mismunandi vistunarúrræði.

Samþykkt: 
  • 12.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10531


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA-ritgerð Jóhanna læst.pdf356.6 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna