is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1056

Titill: 
  • Sameiningar sjávarútvegsfyrirtækja
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Sameiningar hafa verið fyrirferðar miklar í sjávarútvegi síðustu ár eins og víða annars staðar í viðskiptalífinu. Fyrirtæki hafa runnið saman vegna samninga sín á milli eða vegna yfirtöku eins fyrirtækis á öðru.
    Hægt er að skipta sameiningum í nokkrar tegundir eftir því hvort fyrirtæki eru að auka við þá starfsemi sem þau hafa eða fara inn á ný svið, og þá hvernig það er gert.
    Samlegð er lykilatriði varðandi sameiningar. Í samlegð felst að tvö eða fleiri fyrirtæki geta verið meira virði sem ein eining heldur en hvert í sínu lagi.
    Mikil og hröð samþjöppun hefur átt sér stað í íslenskum sjávarútvegi síðan kvótakerfið var tekið upp og þá sérstaklega síðustu tíu árin.
    Misjafnt er hve margar sameiningar stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins hafa farið í gegnum og einnig hafa þau fylgt mismunandi stefnu.
    Aflaheimildir hafa gegnt lykilhlutverki í sameiningum hingað til og hefur tilgangurinn yfirleitt verið að hagræða með samnýtingu aflaheimilda og annarra þátta. Ekki er líklegt að breyting verið á þessu alveg á næstunni en þó mun mikilvægi aflaheimilda í hagræðingu fara minnkandi með aukinni samþjöppun þeirra. Líklegt er að útvíkkun fyrirtækja muni í auknum mæli beinast í átt að markaðnum og aukinni fullvinnslu. Hvað vinnsluna varðar gætu verið samlegðartækifæri í sameiningum en þau eru ekki eins auðsjáanleg í markaðsmálum. Reynslan hefur líka sýnt að fyrirtæki eru farin að nálgast markaðinn sífellt meira, en hafa gert það með öðrum hætti en sameiningum.
    Lykilorð:
    • Sameining
    • Sjávarútvegur
    • Samlegð
    • Hagræðing
    • Aflaheimildir

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2002
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1056


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
sameinsjavarutv.pdf1.31 MBLokaðurSameiningar sjávarútvegsfyrirtækja - heildPDF
sameinsjavarutv_e.pdf91.41 kBOpinnSameiningar sjávarútvegsfyrirtækja - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
sameinsjavarutv_h.pdf405.14 kBOpinnSameiningar sjávarútvegsfyrirtækja - heimildaskráPDFSkoða/Opna
sameinsjavarutv_u.pdf115.28 kBOpinnSameiningar sjávarútvegsfyrirtækja - útdrátturPDFSkoða/Opna