is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10582

Titill: 
  • Að trúa á breytingar? Barack Obama, utanríkismál og arabíska vorið
  • Titill er á ensku Believing in Change? Barack Obama, Foreign Affairs and the Arab Spring
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á þær breytingar sem Barack Obama sagðist ætla að gera á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í framboði sínu til forsetaembættis Bandaríkjanna og hvort þær breytingar hafi náð fram að ganga. Til samanburðar verður höfð sú stefna sem George W. Bush mótaði í sinni forsetatíð en gagnrýni Obama á þá stefnu hefur að stórum hluta mótað orðræðu hans um utanríkismál. Stuðst verður við kenningar um raunhyggju annars vegar og heimsborgarahyggju hins vegar en síðari kenningin hefur mikið verið heimfærð upp á þá orðræðu sem Obama er þekktastur fyrir. Auk þess verða nýttar hugmyndir um hart, mjúkt og vitrænt vald til að varpa skýrara ljósi á þær nálganir sem þykja móta utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Tekin verða dæmi frá uppreisninni í arabaheiminum (arabíska vorinu) og þau notuð til að sýna fram á hvort um raunverulegar breytingar á utanríkisstefnunni sé að ræða.
    Helstu niðurstöður sýna að vissulega má sjá skýrar áherslubreytingar á stefnunni en færð verða rök fyrir því að hún hafi þó ekki haft þau umbreytingaráhrif á alþjóðakerfið sem Obama boðaði.

Samþykkt: 
  • 13.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10582


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Að trúa á breytingar.pdf416.08 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna