Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10582
Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á þær breytingar sem Barack Obama sagðist ætla að gera á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í framboði sínu til forsetaembættis Bandaríkjanna og hvort þær breytingar hafi náð fram að ganga. Til samanburðar verður höfð sú stefna sem George W. Bush mótaði í sinni forsetatíð en gagnrýni Obama á þá stefnu hefur að stórum hluta mótað orðræðu hans um utanríkismál. Stuðst verður við kenningar um raunhyggju annars vegar og heimsborgarahyggju hins vegar en síðari kenningin hefur mikið verið heimfærð upp á þá orðræðu sem Obama er þekktastur fyrir. Auk þess verða nýttar hugmyndir um hart, mjúkt og vitrænt vald til að varpa skýrara ljósi á þær nálganir sem þykja móta utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Tekin verða dæmi frá uppreisninni í arabaheiminum (arabíska vorinu) og þau notuð til að sýna fram á hvort um raunverulegar breytingar á utanríkisstefnunni sé að ræða.
Helstu niðurstöður sýna að vissulega má sjá skýrar áherslubreytingar á stefnunni en færð verða rök fyrir því að hún hafi þó ekki haft þau umbreytingaráhrif á alþjóðakerfið sem Obama boðaði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Að trúa á breytingar.pdf | 416.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |