is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10596

Titill: 
  • Hlutverk stjórnmálaflokka á nýjum tímum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um helstu ógnir stjórnmálaflokka sem lykil valdastofnun lýðræðisríkja í Vestur-Evrópu. Fjallað er um þá þróun sem hefur átt sér stað undanfarna áratugi sem lýsir sér í minnkandi kosningaþátttöku almennings og dvínandi hlutfalls meðlima stjórnmálaflokka. Þá eru störf og hlutverk stjórnmálaflokka skoðuð með tilliti til orsaka þessara dvínandi fylgni við flokkastarf. Vikið er að öðrum leiðum til þess að hafa áhrif á stjórnmál samfélaga til að mynda í gegnum hagsmunasamtök, persónukjör og beint lýðræði. Vikið er að kostum og göllum þessara aðferða og jafnframt fjallað um áhrif þeirra á starf stjórnmálaflokka. Stuðst er við rannsóknir fræðimanna og skoðanakannir um afstöðu almennings til mismunandi kosningakerfa og viðhorfs til stjórnmálaflokka. Að lokum eru niðurstöður ritgerðar dregnar saman og út frá þeim ályktað að þó svo að stjórnmálaflokkar glími við minnkandi vinsældir muni þeir áfram vera nauðsynleg valdastofnun við myndun stjórnarstefnu og stefnumótun lýðræðisríkja.

Samþykkt: 
  • 13.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10596


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaritgerð.pdf584.9 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna