Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1060
Markmið skýrslunnar er að kanna hversu mikilvægur sjávarútvegurinn er fyrir efnahag Norðurlands.
Fjallað er almennt um sjávarútveg á Íslandi og hvernig aflaheimildir skiptast á íbúa. Sjávarútvegurinn á Norðurlandi er skoðaður sérstaklega og eru fyrirtæki landshlutans borin saman við fyrirtæki annarra landshluta. Þá eru margfeldisáhrifin einnig könnuð. Framtíðarhorfur iðnaðarins eru skoðaðar og settar fram tillögur um hvernig auka mætti ímynd hans.
Mikið hefur verið rætt um kosti og galla kvótakerfisins. Margir vilja sjá breytingar gerðar á því og jafnvel að það verði lagt niður á meðan aðrir benda á mikilvægi þess. Einnig hefur hávær umræða verið í gangi um að færa aflaheimildir frá útgerðum aflamarksskipa til útgerða minni báta.
Í skýrslunni kemur fram að sjávarútvegsfyrirtækin á Norðurlandi standa ágætlega en þau mega þó ekki við því að aflaheimildir verði skornar meira niður en t ákvörðun Hafrannsóknarstofnunar segir til um. Ef 5% af aflaheimildum verða fluttar frá fyrirtækjum á Norðurlandi þá gæti það leitt til þess að 181 starfsmenn myndu missa vinnuna og norðlenskt samfélag yrði af rúmlega 617 milljónum kr. tekna á ári.
Lykilorð:
Sjávarútvegur. Norðurland. Efnahagsþróun. Margfeldisáhrif. Framtíðarhorfur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ahrifsjavarutv.pdf | 794.72 kB | Lokaður | Áhrif sjávarútvegs á efnahag Norðurlands - heild | ||
ahrifsjavarutv_e.pdf | 142.98 kB | Opinn | Áhrif sjávarútvegs á efnahag Norðurlands - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
ahrifsjavarutv_h.pdf | 117.96 kB | Opinn | Áhrif sjávarútvegs á efnahag Norðurlands - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
ahrifsjavarutv_u.pdf | 120.13 kB | Opinn | Áhrif sjávarútvegs á efnahag Norðurlands - útdráttur | Skoða/Opna |