Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10637
Í verkefninu er farið yfir helstu atriði sem máli
skipta við ákvörðun jarðskjálftaálags og þau skoðuð í samhengi við Eurocode 8 staðalinn.
Einfalt líkan af tveggja hæða steinsteyptri veggjabyggingu er sett upp í FEM-forriti, líkt er
eftir undirstöðum með gormaeiningum og gerð á því álagsgreining en burðarkerfi byggingarinnar hefði átt að skemmast í Suðurlandskjálfta 2008 miðað við metið
raunálag og reiknað þol hennar.
Kraftdreifing í veggjum í líkaninu þegar stakur jarðskjálftakraftur er lagður á er borin saman við
niðurstöður sem fengust með hefðbundnum aðferðum. Raunálag sem miðast við mæld svörunarróf er borið saman við hönnunarróf Eurocode 8 staðlana í líkaninu. Gerður er samanburður á þremur mismunandi greiningaraðferðum
með því að bera saman raunálag í veggjum við áætlað raunþol.
Greiningaraðferðirnar eru statísk greining láréttra krafta, fjölforma sveiflugreining og tímaraðagreining. Niðurstöður skv. FEM-líkani er að álag er minna en reiknað þol veggja.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð_BSc_ÖA.pdf | 3.19 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |