Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10638
Verkefnið er tvíþætt. Í fyrri hluta þess er gerður samanburður á mismunandi tegundum varmaendurvinnslubúnaðar í loftræsikerfum þar sem fjallað er um tæknilega eiginleika fyrir mismunandi tegundir af varmaendurvinnslubúnaði. Í seinni hluta verkefnisins er gerð athugun á hagkvæmni varmaendurvinnslu. Tilmæli í drögum að byggingareglugerð kveða á um að minnsta kosti 70% nýtingu varmaorku í loftræsikerfum. Reynt er að svara því hvort slíkt sé hagkvæmt. Sýndar eru aðferðir við útreikninga á orkuþörf og fjallað um reikningslegar forsendur sem síðan eru notaðar til þess að reikna út hagkvæmni fyrir þrjár tegundir varmaendurvinnslubúnaðar. Að lokum er gerð næmnigreining og fjallað um niðurstöður hagkvæmniathugunar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Varmanýting í loftræsikerfum.pdf | 3.59 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |