Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1066
Í þessu verkefni er gerð grein fyrir þeim breytingum sem urðu á skattbyrði einyrkja og lítilla fyrirtækja um áramótin 2001 til 2002.
Skoðuð voru skrif og hugrenningar um líkleg áhrif breytinganna á skattgreiðslur einstaklingsrekstrar og einkahlutafélaga.
Til að rannsaka breytta stöðu fyrirtækja fyrir og eftir skattalagabreytingarnar voru tekin dæmi af fyrirtækjum í ólíkum atvinnurekstri með misháar rekstrartekjur. Settir voru upp rekstrarreikningar þeirra og reiknuð út skattbyrði bæði sem einstaklings- og einkahlutafélagarekstur. Reiknuð var út skattbyrði hagnaðar fyrirtækjanna.
Helstu niðurstöður voru þær að skattgreiðslur af rekstrarhagnaði reglulegrar starfsemi er hærri hjá einstaklingsrekstri en hjá einkahlutafélögum bæði árin. Krónutala skattgreiðslna af hagnaði rekstraraðila lækkuðu frá árinu 2001 til 2002.
Upphæð reiknaðs endurgjalds eiganda skiptir verulegu máli hvað skattgreiðslur af hagnaði einstaklingsrekstrar varðar. Því hærra sem hið reiknaða endurgjald er því fyrr lendir eigandi í hátekjuskatti með skattgreiðslur af hagnaði rekstrar síns.
Þegar rekið er einkahlutafélag skiptir hlutfallsleg greiðsla arðs af hagnaði mestu máli hvað skattbyrði varðar.
Lykilorð: Skattlagning, einyrkjar, einkahlutafélög, sprotafyrirtæki, rekstrarumhverfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
skattalagabreyt.pdf | 462.88 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
skattalagabreyt_e.pdf | 51.23 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
skattalagabreyt_h.pdf | 129.67 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
skattalagabreyt_u.pdf | 109.88 kB | Opinn | Áhrif skattlagabreytinga á einyrkja og lítil fyrirtæki - útdráttur | Skoða/Opna |