is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10670

Titill: 
  • Auglýsingar og íslenskt landslag. Áhrif birtingamynda landslags í auglýsingum Iceland Review
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er kannað hvort birtingarmynd landslags í auglýsingum fyrir erlenda ferðamenn hafi áhrif á sjálfsmynd Íslendinga. Könnunin er byggð á ákveðnu úrtaki af landslagsauglýsingum sem birtust á síðum tímaritsins Iceland Review. Blaðið er kynningarrit fyrir erlenda ferðamenn og því er einnig ætlað að kynna landið erlendis. Þar er fjallað um flest er snertir Ísland og einkennir íslenskt samfélag. Hér verða skoðaðar auglýsingar sem birtust á árunum 1966 til 1976 og þær bornar saman við auglýsingar sem komu fram á áratugnum 1996 til 2006.
    Þá er litið til þeirrar orðræðu sem hefur skapast í kringum ímynd landsins og
    markaðssetningu. Hreinleikaímynd landsins hefur verið höfð í hávegum en hún hefur tekið á sig ýmsar myndir. Í framhaldi er litið til kenninga franska fræðimannsins Roland Barthes um mælskufræði auglýsinga sem hann fjallar um í grein sinni Retórík myndarinnar. Að lokum eru auglýsingar hvors áratugar fyrir sig greindar út frá hugmyndum Roland Barthes í samhengi við þjóðernisorðræðuna og komist að þeirri niðurstöðu að auglýsingarnar hafi haft áhrif á þá ímynd sem Íslendingar gera sér af eigin landi og þjóð.

Samþykkt: 
  • 20.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10670


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
heildartexti.pdf1.8 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna