is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10713

Titill: 
  • Hvernig er brugðist við mistökum í þjónustu og hvaða áhrif hefur leiðréttingin á tryggð viðskiptavina?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknir sýna að fjármálafyrirtæki, sem og önnur fyrirtæki, meta hvern og einn viðskiptavin verðmætari en áður og hafa fyrirtæki því einbeitt sér í auknum mæli að leiðréttingu á mistökum við hvern viðskiptavin. Samkvæmt rannsóknum gera stjórnendur fjármálafyrirtækja, sem og annarra þjónustufyrirtækja, sér grein fyrir að ánægja viðskiptavina er lykillinn að velgengni í hörðu samkeppnisumhverfi og að ánægju þeirra verði náð með gæðum í þjónustu. Sterk undirstaða af ánægðum og tryggum viðskipta-vinum auki þannig tekjur fyrirtækisins til framtíðar.
    Markmið rannsóknarinnar er að svara rannsóknarspurningunni: „Hvernig er brugðist við mistökum í þjónustu og hvaða áhrif hefur leiðréttingin á tryggð viðskiptavina?“ Mælitækið er byggt á spurningalistum fyrri rannsókna sem hafa verið gerðar á þessu sviði fyrir fjármálafyrirtæki og gerð var lýsandi rannsókn þar sem spurningalistar voru lagðir fyrir viðskiptavini og starfsmenn í formi netkönnunnar.
    Í framhaldi af rannsóknarspurningunni voru settar fram fimm tilgátur sem allar tengdust henni og niðurstöður skoðaðar í því samhengi. H1: Ánægðari viðskiptavinir eru tryggari viðskiptavinir. H2: Tengsl eru á milli þess hversu hröð viðbrögð starfsfólks eru við mistökum og þess að viðskiptavinur skipti. H3: Upplifun viðskiptavina og starfs-manna er sú sama hvað varðar leiðréttingu. H4: Viðskiptavinir vilja vera í sérstakri þjónustu í gegnum vildarklúbb. H5: Starfsmenn telja að þeir hafi nægjanlegt umboð til leiðréttingar á mistökum.

Samþykkt: 
  • 24.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10713


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS-ritgerd_LOKAform_endanlegt.pdf1.42 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna