is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10729

Titill: 
  • Starfsánægja sjúkraþjálfara
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á starfsánægju sjúkraþjálfara á Íslandi. Við rannsóknina var notast við mælitækið Evrópsku starfsánægjuvísitaluna (EEI) sem hefur verið þýdd, prófuð og staðfærð að íslenskum aðstæðum og heitir Íslenska starfsánægjuvísitalan. Hún byggir á átta þáttum starfsánægju og hvatningar sem tengjast hollustu og tryggð starfsmanna. Rannsóknin var lögð fyrir dagana 13. – 23. október 2011 með rafrænum hætti. Könnunin var send á félagsmenn Félags íslenskra sjúkraþjálfara (FÍSÞ) og svöruðu 129 af 418 félagsmönnum. Svarhlutfallið var því rétt tæp 30%. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þríþættar í fyrsta lagi að sjúkraþjálfarar á Íslandi eru á heildina litið jafn ánægðir og vísitala Íslensku ánægjuvísitölunnar. Í öðru lagi eru sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar síður ánægðari heldur en sjúkraþjálfarar sem starfa sem launþegar og þeir sjúkraþjálfara sem starfa hvor tveggja sem launþegar og sjálfstætt starfandi. Í þriðja lagi þá virðast sjúkraþjálfarar sem starfa hvoru tveggja sem launþegar og sjálfstætt starfandi vera ánægðastir.

Samþykkt: 
  • 26.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10729


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Starfsánægja sjúkraþjálfara-Bryndís Eva Sverrisdóttir.pdf462.73 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna