is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10730

Titill: 
  • Tengsl heildarkostnaðar og ávöxtunar séreignarsjóða
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar er að skoða samspil ávöxtunar og heildarkostnaðar séreignarsjóða á Íslandi. Leitast er við að draga fram sem heildstæðasta mynd af þeim þáttum sem móta og stýra rekstri séreignarsjóða. Sýnt er fram á hvernig kostnaður sem fellur til við fjárfestingu sparnaðar getur til langs tíma haft mikil áhrif á ávöxtun sjóðfélaga og dregið úr heildarsparnaði þeirra. Í rannsókninni er stuðst við kennitölur úr ársskýrslum Fjármálaeftirlitsins um lífeyrissjóði og skoðaðir 47 sjóðir á árabilinu 2004 til 2010. Settar eru fram fjórar tilgátur um að fjárfestingarstefna, stærð sjóða, rekstrarsaga og sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar hafi áhrif á heildarkostnað. Rannsóknin leiðir í ljós að munur er á heildarkostnaði sjóða sem fjárfesta í verðtryggðum innlánum og þeirra sem notast við annars konar fjárfestingarstefnu. Ekki er hægt að sýna fram á að aldur sjóða og sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar hafi áhrif á heildarkostnað þeirra. Marktækur munur reynist ekki vera á milli sjóða eftir stærð og má telja líklegt að íslensku séreignarsjóðirnir nái ekki stærðarhagkvæmni vegna smæðar sinnar.

Samþykkt: 
  • 26.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10730


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Haraldur Ársælsson Bsc 2011 Lífeyrismál Séreignarsparnaður Tengsl heildarkostnaðar og ávöxtunar séreignarsjóða.pdf1.47 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna