is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Listaháskóli Íslands > Listkennsludeild / Department of Arts Education > Lokaritgerðir / Theses (MA, M.Art.Ed.) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10731

Titill: 
  • Hver er reynsla tónlistarkennara af samræmdu prófakerfi í tónlistarnámi?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • „Hver er reynsla tónlistarkennara af samræmdu prófakerfi í tónlist“? Svör við þeirri spurningu eru megin viðfangsefni þeirrar rannsóknar sem hér er til umfjöllunar.
    Byrjað var að prófdæma samkvæmt miðstýrðu prófakerfi í tónlistarskólum á Íslandi árið 2004 í kjölfar nýrrar Aðalnámskrár Tónlistarskóla sem kom út árið 2000. Framkvæmd prófakerfisins er í höndum Prófanefndar tónlistarskóla sem stofnuð var árið 2002.
    Í ritgerðinni er greint frá aðdraganda að innleiðingu kerfisins, tilgangi þess og þeim markmiðum sem því er ætlað að ná fram. Skýrt er frá starfi Prófanefndar, fjallað um námsmatskenningar og grein gerð fyrir þeirri rannsóknaraðferð sem beitt var við rannsóknina. Einstaklingsviðtöl voru tekin við 13 kennara og skólastjórnendur og eru svör um reynslu þeirra af ýmsum þáttum kerfisins greind samkvæmt aðferðum eigindlegrar aðferðafræði. Spurt var um reynslu af samskiptum við Prófanefnd ásamt reynslu af umgjörð prófanna og samskiptum við prófdómara. Spurt var um mat á því hvernig samræming hafi tekist og kennarar voru spurðir að því hverjum þeim þyki kerfið þjóna. Auk þess svöruðu skólastjórar spurningum um kostnaðarhlið kerfisins.
    Niðurstöður úr rannsókninni eru að verulegra umbóta sé þörf á starfsháttum Prófanefndar tónlistarskóla. Form prófa og framkvæmd þykir stíf og ósveigjanleg og samræming þykir ekki hafa tekist sem skyldi. Staða kennara og nemenda er ekki talin sterk í prófakerfinu og tímabært að gagngerð endurskoðun fari fram á því.

  • Útdráttur er á ensku

    The thesis explores the experience of music teachers in Iceland of a standardized educational assessment system in Music. Following the adoption of a national music curriculum, a centralized examination system was introduced in 2004 in Icelandic music schools. The Icelandic Music Schools’ Examinations Board was made responsible for its administration.
    The thesis explores the background of the examination system, its primary goals, and its implementation. In addition to analyzing the work of the Examinations Board, it discusses theories of educational and learning assessments and the methodology used to conduct the case study on the Icelandic system. Individual interviews were conducted with 13 music teachers and music school directors, and their comments on various aspects of the system were analyzed by using qualitative methodology. The interviewees were asked about their experiences of the Examinations Board, their views of the administration of examinations, and their relationships with external examiners. They were also asked to evaluate the examination system with a view of answering the question of whose interests it served. Finally, they were asked about the system’s cost-effectiveness.
    The thesis concludes that the work of the Examinations Board leaves much to be desired. The design and administration of the examinations are considered rigid and inflexible, and the position of music teachers and students within the system is seen as being weak. Given the flaws of the comprehensive standardized approach, the argument is made that the examination system is in need of major reform.

Samþykkt: 
  • 26.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10731


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerd.pdf678.79 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna