is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10762

Titill: 
  • Höfn: Þéttbýlið við þjóðgarðinn
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Töluverðar samfélagslegar breytingar hafa átt sér stað á Höfn í Hornafirði undanfarin ár, og þá einkum í atvinnulífinu. Bærinn, sem byggðist upp á sjávarútvegi, er nú farinn að taka á móti vaxandi fjölda ferðamanna ár hvert. Margir fjölsóttir ferðamannstaðir eru í námunda við bæinn, svo sem Skaftafell og Jökulsárlón, og sækja ferðamenn margvíslega þjónustu til Hafnar sem er eina þéttbýlið á svæðinu. Þar að auki er hinn nýstofnaði Vatnajökulsþjóðgarður nánast við bæjardyrnar, en Skaftafell tilheyrir honum.
    Í þessu verkefni er leitast við að kanna hver ímynd Hafnar er í augum erlendra ferðamanna, og hvort sú ímynd tengist á einhvern hátt Vatnajökulsþjóðgarði. Miklir kostir geta mögulega fylgt því að hugrenningatengsl eru til staðar á milli bæjarins og Vatnajökulsþjóðgarðs í hugum ferðamanna. Á það ekki síst við varðandi áframhaldandi uppbyggingu á ferðaþjónustu í bænum og umhverfi hans.
    Rannsóknin er byggð upp á hugarkortum, óformlegum viðtölum og spurningakönnunum sem erlendir ferðamenn á Höfn fylltu út sumrin 2009 og 2010, auk innihaldsgreiningu á fyrirliggjandi gögnum. Er stuðst við kenningalegan ramma um ímyndir ferðamannastaða (e. tourist destination image) og þjóðgarðabæi (e. gateway communities).
    Niðurstöður sýna að bærinn hefur sterka ímynd sem sjávarþorp í augum erlendra ferðamanna. Vatnajökull spilar einnig stórt hlutverk í ímynd bæjarins, en tenging við Vatnajökulsþjóðgarð virðist vera veik. Má það að öllum líkindum rekja til þess hve stutt er liðið frá stofnun þjóðgarðsins og þess hve innviðir hans eru enn lítt sýnilegir. Til að styrkja ferðaþjónustu sem atvinnugrein á svæðinu er mikilvægt að efla samvinnu sveitarfélagsins og þjóðgarðsins, ekki síst í að efla markaðssetningu og byggja upp innviði ferðamennsku á svæðinu.
    Efnisorð: Höfn í Hornafirði, Vatnajökulsþjóðgarður, þjóðgarðar, ímynd ferðamannastaða, þjóðgarðabær, staðarvitund, ferðamennska.

  • Útdráttur er á ensku

    The town of Höfn in Hornafjörður has been facing consideral societal changes in the recent past. A town where fisheries has always been the main economical activity, is now welcoming more foreign visitors each year. This is mainly due to Höfn playing the role of a service center, to those visiting the major tourist attractions in the vicinity. Skaftafell and Jökulsárlón are a few to name, along with the nearby Vatnajökull National Park which was recently established.
    The aim of this thesis is to investigate the tourist destination image of Höfn, and to what extent it relates to Vatnajökull National Park. It could be beneficial for future tourist development in the town if visitors perceive the two as related destinations.
    The data collection consists on concept maps, informal interviews and a questionnaire which foreign visitors in Höfn responded to during the summermonths of 2009 and 2010, along with content analysis of other textual data on the subject. The study is based on theories of tourist destination images and Gateway Communities.
    In short, the town holds a strong image of a fishing town. The Vatnajökull ice cap also plays a major role, although the relation to Vatnajökull National Park appears to be vague. Possibly that is due to the short time elapsed since the National Park designation and current lack of visible infrastructure. Co-operation between the municipality and the National Park could prove beneficial for strengthening tourism infrastructure, planning and marketing in the area.
    Key-words: Höfn, Vatnajökull National Park, national parks, tourist destination image, gateway community, sense of place, tourism.

Samþykkt: 
  • 31.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10762


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Árdís eintak í prentunx.pdf9.31 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna