is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10775

Titill: 
  • Ofanflóð í kjölfar goss í Eyjafjallajökli 2010
  • Titill er á ensku Formation of sediment gravity flows subsequent to the 2010 eruption in Eyjafjallajökull
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ísland er úthafseyja á Mið-Atlantshafshryggnum sem skilur að N-Ameríkuflekann og Evrasíuflekann. Af þessum völdum er mikil eldvirkni á landinu, en einnig er staðsettur möttulstrókur undir landinu sem eykur á eldvirknina. Á Íslandi er talið að gos verði að meðaltali á fjögurra ára fresti og eru þau af öllum toga s.s. hraungos og gos undir jökli sbr. Eyjafjallajökulsgosið sem hófst 14.apríl 2010. Gos undir jökli geta valdið miklum flóðum þar
    sem ísinn bráðnar hratt vegna hita. Það er einmitt það sem gerðist í Eyjafjallajökulsgosinu 2010. Flóðin, sem voru eðjuflóð og jökulhlaup, ruddu sér leið niður árfarvegi í suðurhlíð
    jökulsins. Í árfarvegi Holtsár sjást ummerki eðjuflóðanna greinilega vegna mikils rofs sem flóðin ollu og einnig gríðarlegs magns nýs efnis sem flóðin báru með sér.
    Tekin voru tíu sýni niður með Holtsá eftir flóðin og reynt var að skera úr um hvort flóða- eða straumvatnaset væri að ræða. Stuðst var við kornastærðardreifingu og smásjárskoðun til að skera úr um setmyndunarhætti sýnanna.
    Nokkuð greinilegar niðurstöður fengust með þessum aðferðum. Reyndust tvö af þessum tíu sýnum vera straumvatnaset, þrjú þeirra blönduð eðjuflóðaset og afgangurinn ofurblönduð eðjuflóðaset. Straumvatnasetið innihélt minna af gjósku, en meira af bergbrotum en eðjuflóðasýnin. Niðurstöður sýna að athugun á kornastærðardreifingu nægir í flestum tilvikum til þess að greina á milli eðjuflóðasets og straumvatnasets: straumvatnasetið sýnir eintoppa kornastærðardreifingu, en eðjuflóðaset er tví- til þrítoppa og gróft skekkt sem bendir til einhvers konar skolunar á fínefni.

  • Útdráttur er á ensku

    Abstract
    Iceland is an island situated on the mid-Atlantic Ocean Ridge. Iceland is a divergent plate
    boundary that separates the North-American plate and the Eurasian plate resulting in a high volcanic activity. Iceland is also a hot spot which supports increased volcanic activity on the
    island. In Iceland, volcanic eruptions occur on avarage every four years. The eruptions can vary in types and explosivity e.g. lava flows and subglacial eruptions like the Eyjafjallajökull
    eruption on 14th of April 2010. Subglacial eruptions can cause extreme floods because the ice melts very fast and that is what happened in the eruption of Eyjafjallajökull 2010. Lahar and jökulhlaup burst down the river channels south of the glacier. In the river channel of Holtsá evidence of the lahar can be seen because of erosion and the large amount of new material that came down with the floods.
    Ten samples of sediment were taken down the river channel of Holtsá with the aim to find out whether the samples were streamwater – or flood deposit. The methods used were analyses of grainsize distribution and microscopic research of the samples composition.
    Promising results were obtained by using these methods, which allowed the separation between different processes during the sediment accumulation. Two of the samples showed characteristics of streamwater deposits, three samples were a mixture of lahar and
    streamwater deposit and the rest of the samples showed characteristics of hyperconcentrated lahar deposits. The streamwater deposits contained less glass material (ash) and more rock fragments than the lahar deposits. The grain size distribution showed a clear difference between the lahar and streamwater deposit. The streamwater deposit was unimodal but the lahar deposit bimodal or trimodal.

Samþykkt: 
  • 2.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10775


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Rakel_ritgerð-loka.pdf2.05 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna