is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1080

Titill: 
  • Lífeyrissjóðir í Evrópu : þróun eignasafna og ávöxtun 1992 - 2001
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni voru borin saman lífeyrissjóðir sex landa í Evrópu á tímabilinu 1992-2001. Samsetning í eignasöfnum þeirra var skoðuð með áherslu á hlutabréf og skuldabréf. Lífeyriskerfi landanna eru um margt ólík og mismunandi form við lýði í hverju þeirra. Starfsumhverfi þeirra er frábrugðið á margan hátt og ber þar helst að nefna lagaumhverfið. Tvö samanburðarlandanna búa við nánast algjört frjálsræði í fjárfestingum en hin fjögur eru bundin hömlum. Skoðað var hvaða áhrif slíkar hömlur höfðu á ávöxtun sjóðanna. Fjallað var um skipan í stjórnir sjóðanna og ábyrgð þeirra í starfseminni að því marki sem rannsóknin náði. Að lokum voru fjárfestingar sjóðanna skoðaðar og þróun þeirra á tímabilinu ásamt þeirri ávöxtun sem fékkst á eignasöfnin. Eignasöfn sjóða breyttust töluvert á undanförnum árum og var mesta aukningin í hlutabréfum á kostnað innlendra skuldabréfa.
    Helstu niðurstöður:
    Ákjósanlegasta eignasafn í samanburðinum á tímabilinu 1992-2001 var að meðaltali samsett að 65% hluta úr innlendum eignum, 20-25% í innlendum hlutabréfum, 15-20% í erlendum hlutabréfum, 50% í innlendum skuldabréfum, 5% í erlendum skuldabréfum og 4-6% í fasteignum. Þessi hlutföll einkenndu eignasöfn sænskra lífeyrissjóða á tímabilinu. Þar sem þeir skiluðu einnig hæstu meðalraunávöxtuninni á tímabilinu áttu sænskir sjóðir besta eignsafn sjóða í samanburðinum á árunum 1992-2001. Lífeyrissjóðir þeirra landa sem eru bundnir hömlum í fjárfestingum skila ekki síður góðri ávöxtun en sjóðir þeirra landa sem búa við frjálsræði. Aukin fjárfesting í hlutabréfum hefur ekki skilað sér í aukinni ávöxtun á þessu tiltekna tímabili í mótsögn við fræði fjármálanna.
    Lykilorð:
    Lífeyrissjóðir
    Eignasamsetning
    Áhættudreifing
    Fjárfestingarhömlur
    Ávöxtun

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2003
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1080


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lifeyrissj.pdf903.63 kBTakmarkaðurLífeyrissjóðir í Evrópu - heildPDF
lifeyrissj_e.pdf112.87 kBOpinnLífeyrissjóðir í Evrópu - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
lifeyrissj_u.pdf158.28 kBOpinnLífeyrissjóðir í Evrópu - útdrátturPDFSkoða/Opna