is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1082

Titill: 
  • Greining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis var að greina gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdasviði Landsvirkjunar. Greiningin fólst í því að koma að raunverulegri vinnu ritunarhóps við smíði og endurbætur á gæðaferlum tengdum Verkfræði- og framkvæmdasviði. Sú vinna sem fram fór á þeim fundum sem haldnir voru verður borin saman við þær fræðilegu kenningar sem settar hafa verið fram. Tilgangurinn er að átta sig á þeirri stöðu og stefnu sem íslensk fyrirtæki eru að vinna eftir í gæðamálum.
    Af niðurstöðum rannsóknarinnar má álykta að fyrirtæki sem standa að verklegum framkvæmdum standa frammi fyrir mikilli gæðavinnu. Sú vinna miðar að því að koma á fót vottuðum gæðakerfum. Mikill áhugi er hjá fyrirtækjum að fara að vinna í gæðamálum, og hafa til að mynda samtök Iðnaðarins haldið gæðanámskeið fyrir verktaka í verklegum framkvæmdum.
    Auknar kröfur til gæðamála eru gerðar til fyrirtækja er standa að verklegum framkvæmdum. Verk og verkþættir eru orðnir af þeirri stærðargráðu að bjóða þarf verk út á Evrópska efnahagssvæðinu sem ýtir undir að menn hafi vottuð gæðakerfi hjá sér og geri kröfur um slíkt hið sama hjá undirverktökum.
    Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að Landsvirkjun er á góðri leið með sín gæðamál. Fyrirtækið hefur lagt metnað sinn í það rafræna kerfi sem heldur utan um gæðahandbókina. Virk þátttaka starfsmanna er í hávegum höfð og er unnið að vottun fyrstu aflstöðvarinnar (Blöndu) um þessar mundir.
    Lykilorð:
     Greining
     Gæðaferlar
     Undirverktakar
     Framkvæmdir
     Landsvirkjun

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2003
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1082


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
landsvirk.pdf1.01 MBTakmarkaðurGreining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar - heildPDF
landsvirk_e.pdf148.29 kBOpinnGreining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
landsvirk_h.pdf174.93 kBOpinnGreining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar - heimildaskráPDFSkoða/Opna
landsvirk_u.pdf152.17 kBOpinnGreining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar - útdrátturPDFSkoða/Opna