is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10872

Titill: 
  • Hermun á koltrefja framleiðslu Össur hf. Líkanagerð og framleiðslugreining
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni var unnið tölvugert hermilíkan af framleiðslukerfi koltrefja gervilima hjá Össuri hf. Gerðar voru tillögur til úrbóta á ferlinu og leiðir fundnar til þess að mæta aukinni eftirspurn. Stuðst var við flæðirit Averill M. Law fyrir áreiðanlega hermun við úrvinnslu verkefnisins og tölvugerða líkanið var skrifað í hugbúnaðnum AutoMod. Líkanið tekur mið af smáatriðum framleiðslukerfisins og líkir eftir því á sannfærandi hátt. Líkanið tekur einnig mið af hugsanlegum breytingum, m.a. fjölgun vélbúnaðar og starfsmanna og gefur því mikilvægar upplýsingar um hegðun kerfisins við mismunandi uppsetningu. Össur hf. stendur frami fyrir þeirri áskorun að anna hratt vaxandi eftirspurn, á sama tíma og núverandi uppsetning framleiðslunnar er komin að þolmörkum. Því gefur hermun á mögulegu framtíðarástandi verksmiðjunnar mikilvægar upplýsingar sem stjórnendur geta notfært sér þegar ákvarða skal hvernig skal stækka framleiðsluna til að anna aukinni eftirspurn.

Samþykkt: 
  • 24.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10872


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni_skemman.pdf1.55 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna