is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10874

Titill: 
  • Tilgangur námsmats : rannsókn á stefnumörkun grunnskóla
Útgáfa: 
  • 2009
Útdráttur: 
  • Gerð er grein fyrir niðurstöðum rannsóknar á tilgangi og stefnumörkun grunnskóla um námsmat eins og því er lýst í skólanámskrám. Upplýsinga var leitað á heimasíðum þriðja hvers grunnskóla hér á landi, alls hjá 58 grunnskólum. Efni sem tengdist tilgangi og stefnumörkun um námsmat var að finna hjá um 60% skólanna (35 af 58). Gögnin voru m.a. greind með hliðsjón af því hvort áhersla væri á leiðsagnarmat (formative assessment) eða lokamat (summative assessment). Fram kemur að áhersla virðist jafnan meiri á leiðsagnarmat en skýr samhljómur er í þeim lýsingum og þeim sem finna má í lögum og námskrám. Í 43% skólanámskránna kemur fram áhersla á að haga námsmati með tilliti til margbreytilegs nemendahóps. Rannsóknir sýna að orðræða um námsmat, framkvæmd þess og stefnumörkun einkennist oft af togstreitu og þversögnum sem lýsa sér í átökum milli ólíkra sjónarmiða. Þar er einkum um að ræða mismunandi sýn á tilgang námsmats, sem aftur á sér rætur í ólíkum hugmyndastefnum á sviði menntamála.

Birtist í: 
  • Ráðstefnurit Netlu : rannsóknir - nýbreytni - þróun
Athugasemdir: 
  • Fyrsta ritið í röð ráðstefnurita sem komið hafa út í kjölfar árlegs málþings á vegum Menntavísindasviðs. Heitir Ráðstefnurit Netlu : Menntakvika ásamt viðeigandi ártali frá árinu 2010.
Samþykkt: 
  • 24.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10874


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
tilgangur.pdf682.18 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna