is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10876

Titill: 
  • EUROPROF-verkefnið : veruleiki kennaranema í Evrópu
Útgáfa: 
  • 2009
Útdráttur: 
  • Kennarar og nemendur í kennslufræði við félagsvísindadeild Háskóla Íslands hafa sl. þrjú ár tekið þátt í Sókrates-þróunarverkefni sem lauk í september 2009. Í greininni er gefið yfirlit yfir helstu þætti þróunarverkefnisins. Meginmarkmið þess var að efla þekkingu og skilning verðandi tungumálakennara í Evrópu á menntun tungumálakennara og uppbyggingu skólakerfisins. Ólík skólamenning grunn- og framhaldsskóla og kennaramenntunarstofnana í þátttökulöndunum var einnig í brennidepli. Undirmarkmið var að gera tungumálakennara hæfari til að starfa í fjölmenningarlegu samfélagi. Alls tóku átta Evrópulönd þátt í verkefninu. Kennaranemarnir dvöldust í tvær vikur sem skiptinemar í einu landanna. Þeir kynntu sér skólastarf, bæði á grunn- og framhaldsskólastigi, kenndu og öfluðu ýmissa gagna um land og þjóð. Hér verða dregnar saman helstu niðurstöður úr þeim gögnum sem aflað var í tengslum við verkefnið, þ.e. viðtölum við kennaranemana, ígrundunum þeirra og formlegum verkefnum. Dvölin virðist hafa opnað kennaranemunum nýja sýn og aukið skilning á mikilvægi fjölmenningarlegrar vitundar tungumálakennara og varpað ljósi á ólíka uppbyggingu kennaranáms í mismunandi löndum. Kennaranemunum fannst þeir enn fremur verða meðvitaðri um kosti íslenskra skóla og um leið hvað mætti betur fara. Þá fannst þeim þessi reynsla efla sjálfstraust sitt sem einstaklinga og verðandi kennara.

Birtist í: 
  • Ráðstefnurit Netlu : rannsóknir - nýbreytni - þróun
Athugasemdir: 
  • Fyrsta ritið í röð ráðstefnurita sem komið hafa út í kjölfar árlegs málþings á vegum Menntavísindasviðs. Heitir Ráðstefnurit Netlu : Menntakvika ásamt viðeigandi ártali frá árinu 2010
Samþykkt: 
  • 24.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10876


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
europrof.pdf161.2 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna