Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10877
Í nútíma samfélögum er lögð vaxandi áhersla á sjálfbærni og samkvæmt stefnu Sameinuðu þjóðanna um menntun til sjálfbærrar þróunar gegna fjöldi stofnana og samtaka mikilvægu hlutverki, þar á meðal skólar. Þegar aðalnámskrá grunnskóla á Íslandi er athuguð með tilliti til sjálfbærrar þróunar koma í ljós mörg teikn. Í greininni er rætt hvernig hægt er að þróa skólastarf þannig að það þjóni markmiðum sjálfbærni. Menntun til sjálfbærrar þróunar dafnar ekki þegar viðfangsefni eru slitin í sundur eftir margskiptri stundaskrá eða þar sem þröng sjónarmið einstakra fræðigreina ráða ferðinni. Þegar einkenni sjálfbærrar þróunar eru gerð að viðmiðum við val á viðfangsefnum í mörgum námsgreinum og í skólastarfi er mögulegt að árangur náist. Markmiðið er að skapa heildstæða sýn á menntun sem er til sjálfbærrar þróunar, menntun sem skapar réttlátara samfélag, menntun sem leiðir til þekkingar, virðingar og ábyrgðar, ekki bara einhvern tíma í framtíðinni heldur strax í dag.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
hvadgreadum.pdf | 160.17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |