is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10878

Titill: 
  • Lýðræðisleg skólastjórnun : hvar skiptir hún máli?
Útgáfa: 
  • 2009
Útdráttur: 
  • Í þessari grein er sagt frá rannsókn sem gerð var meðal 250 framhaldsskólakennara í ellefu framhaldsskólum um áhrif skólastjórnenda á starf framhaldsskólakennara og hvað helst stuðlaði að starfsánægju þeirra. Rannsóknarspurningin var: Hvað aðgreinir þá skóla sem er lýðræðislega stjórnað frá þeim sem er ekki eins lýðræðislega stjórnað að mati kennara? Athygli var einkum beint að skólamenningu; skipulagi skólastarfs; hvaðan markmið skólastarfs kæmu; hvernig fylgst væri með því hvort markmið næðust; hvatningu til að bæta sig í starfi; kerfisbundinni gagnaöflun; og ákvörðunum um að bæta skólastarfið. Sérstaklega var skoðaður munur á skólum eftir því hvort kennurum fannst þeim vel eða illa stjórnað. Marktækur munur kom fram varðandi flesta þætti skólastarfsins eftir því hvort kennarar töldu stjórnun skólans lýðræðislega eða ekki. Lýðræðisleg stjórnun virtist þannig mesti áhrifavaldurinn á skólastarfið.

Birtist í: 
  • Ráðstefnurit Netlu : rannsóknir - nýbreytni - þróun
Athugasemdir: 
  • Fyrsta ritið í röð ráðstefnurita sem komið hafa út í kjölfar árlegs málþings á vegum Menntavísindasviðs. Heitir Ráðstefnurit Netlu : Menntakvika ásamt viðeigandi ártali frá árinu 2010
Samþykkt: 
  • 24.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10878


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lydraedi.pdf136.12 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna