is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1091

Titill: 
  • Tækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Það sem hefur hamlað framþróun íslenskrar ferðaþjónustu hefur lengi verið og er hve lélega arðbærni flest íslensk ferðaþjónustufyrirtæki búa við og hve nýting fjárfestinga á landsbyggðinni er dræm, sérstaklega utan háannar. Meginmarkmið þessa verkefnis er að kanna hvort að Eyjafjarðarsvæðið eigi möguleika á því að bæta stöðuna með áherslu á funda- og ráðstefnu markaðinn með tilliti til lykilárangursþátta, SVÓT-greiningar og þess hvað er að gerast á alþjóðlegum mörkuðum.
    Helstu niðurstöður:
    Fyrir Eyjafjarðarsvæðið að ná markaðsstöðu á ráðstefnu- og funda markaðnum er fyrst og fremst mikilvægt að styrkja innviði þá sem þurfa að vera til staðar til þess að uppfylla væntingar viðskiptaferðamanna og ráðstefnuhaldara. Sérstaklega er þá brýnt að bjóða allavega jafn góða uppbyggingu innviða og aðilar á höfuðborgarsvæðinu eru að bjóða upp á því það eru samkeppnisaðilar svæðisins og á þessu veltur hvort að funda og ráðstefnuhaldarar sjá sér hag og kosti í að halda fundi og ráðstefnur á Eyjafjarðarsvæðinu.
    Eyjafjarðarsvæðið hefur upp á heilmikið að bjóða sem áhugaverður ferðamannastaður og hefur svæðið samkeppnislegt forskot á önnur landsbyggðasvæði. Jafnframt hefur svæðið innviði til þess að halda fundi og ráðstefnur en einungis í litlu magni. Svæðið horfir þó fram á bjartari framtíð varðandi bætta aðstöðu til funda og ráðstefnuhalds eins og bættar samgöngur, menningarhús og aukna menntun.
    Lykilorð:
    - Eyjafjarðarsvæði
    - Ráðstefnur/fundir/hvataferðir
    - Tækifæri
    - Innviðir
    - Lenging ferðamannatíma

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2003
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1091


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
fundirradstefnur.pdf909.56 kBTakmarkaðurTækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna - heildPDF
fundirradstefnur_e.pdf143.61 kBOpinnTækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
fundirradstefnur_h.pdf155.24 kBOpinnTækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna - heimildaskráPDFSkoða/Opna
fundirradstefnur_u.pdf147.44 kBOpinnTækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna - útdrátturPDFSkoða/Opna