Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10933
Í þessari ritgerð verður fjallað um brasilíska leikhúsfrömuðinn og byltingamanninn Augusto Boal. Hann nálgaðist leiklist á nýstárlegan hátt þar sem lögð var áhersla á að beita leiklist til samfélagslegra úrbóta. Rýnt verður í skrif hans og áherslur Leikhúss hinna kúguðu (e. Theatre of the Oppressed) kynntar. Fjallað verður ítarlega um þátttökuleikhús Boals, en þar er lögð áhersla á að stofna til samræðna milli leikara og áhorfenda. Í þátttökuleikhúsi er hlutverk áhorfenda að leita lausna við áleitnum spurningum sem leikarar varpa fram. Höfundur ritgerðar lýsir leikrænu ferli sem hann hefur útfært fyrir nemendur á efsta stigi grunnskólans, og er byggt á nálgun Boals. Kynntar verða áherslur fræðimanna um leiklistarkennslu og færð eru rök fyrir því að leikrænt ferli í anda Boals höfði til þeirra allra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKARITGERD-topp nice.pdf | 194.03 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |