is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10941

Titill: 
  • Fullorðinsfræðsla heyrnarlausra, nám og kennsla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að skoða með hvaða hætti fullorðinsfræðsla heyrnarlausra er skipulögð, hver eru markmið námsins, námsleiðir og kennsluhættir með tilliti til þessa hóps nemenda. Ritgerðin fjallar einnig um þá þætti sem hafa haft áhrif á menntunarsögu heyrnarlausra og stöðu þeirra í dag í samfélagi heyrandi.
    Við vinnu þessarar ritgerðar er beitt eigindlegum rannsóknaraðferðum; skoðun heimilda og viðtöl. Ég tók viðtöl við fjóra einstaklinga, bæði heyrnarlausa og heyrandi, sem koma að kennslu heyrnarlausra með einum eða öðrum hætti. Ég skoðaði heimasíður sambærilegs náms í Bretlandi auk Aðalnámsskrá grunnskóla og heimasíðu Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins-Grunnmenntaskólinn, ásamt námsskrá Mímis-Símenntun sem mun bjóða uppá þetta nám nú eftir áramót. Einnig las ég greinar og rannsóknir á málefnum sem tengjast þessum hópi heyrnarlausra og hafa haft áhrif á stöðu þeirra, bæði námslega og félagslega.
    Niðurstöður rannsóknar benda til að fullorðinsfræðsla hérlendis hafi sömu markmið og fullorðinsfræðsla heyrandi einstaklinga og er það í samræmi við markmið fullorðinsfræðslu heyrnarlausra erlendis. Markmiðin eru hin sömu en námsefni og kennsluhættir verða aðlagaðir heyrnarlausum þar sem tillit er tekið til þess að táknmál er þeirra móðurmál.

Athugasemdir: 
  • Lokaverkefni til B.Ed.-prófs
Samþykkt: 
  • 16.3.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10941


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Snidmat___kapa til prentunar.pdf31.18 kBOpinnPDFSkoða/Opna
Sniðmát titilsíða til prentunar.pdf51.58 kBOpinnTitilsíðaPDFSkoða/Opna
Bed.ritgerð til prentunar.pdf211.59 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna