Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10942
Einhverfa tengist truflun á taugaþroska og felur í sér ýmsar truflanir svo sem erfiðleika í námi og félagslegum samskiptum. Ritgerð okkar fjallar um einhverfu og framhaldsskólann. Við vinnu á rannsóknarspurningu sendum við út spurningalista til foreldra barna með einhverfu á framhaldsskólastigi. Með spurningalistanum var leitast við að fá svör foreldra einhverfa barna úr hinum ýmsu framhaldsskólum landsins og kanna það hvernig framhaldsskólar taka á móti ungmennum með einhverfu og hvernig foreldrar upplifa sig þegar ungmennin fara úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla. Rannsóknarspurningin sem við leitumst svara við er því hvort framhaldsskólar séu tilbúnir til þess að taka á móti ungmennum með einhverfu, sem oft á tíðum þurfa meiri sérúrræði í námi heldur en í boði er á sérnámsbrautum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Einhverfa.pdf | 524.73 kB | Lokaður til...29.01.2132 | Heildartexti |
Athugsemd: Lokað skjal.