Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10944
Í þessari rannsóknarritgerð byrjum við á að fjalla stuttlega um unglingsárin og þau vandamál sem þeim fylgja. Því næst fjöllum við um tómstundir almennt og þrengjum rammann að félagsmiðstöðvastarfi. Félagsmiðstöðvastarf í Kópavogi er kynnt auk þess sem farið er í sögu og þróun félagsmiðstöðvarinnar Ekkó í Kópavogi. Hrafnhildur Ásbjörnsdóttir fyrrum forstöðumaður Ekkó til 19 ára gefur okkur sína sýn og skoðun á félagsmiðstöðvastarfi. Eigindleg rannsókn var framkvæmd þar sem viðmælendur voru 8 einstaklingar sem höfðu öll tekið virkan þátt í starfi Ekkó. Markmið rannsóknarinnar var að fá fram viðhorf þeirra til starfsins og hvaða þættir í starfinu mótuðu viðhorf þeirra. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að félagsmiðstöðin er mikilvægur staður til að eflast og þroskast félagslega. Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar getur skipað stóran sess í lífi unglingsins og getur haft gífurleg áhrif á hann. Niðurstöður rannsóknarinnar ættu að gefa starfsfólki í frítímaþjónustu hugmynd um hvað það er sem virkilega skiptir máli í frítímaþjónustu unglinga og hversu mikilvægt hlutverk þeirra er.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ekkó bjargaði unglingsárum mínum. BA-ritgerð.pdf | 443.61 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |