is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Meistarverkefni í félagsvísindadeild (MA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10955

Titill: 
  • Hvernig velur þú barnaföt? : markaðsrannsókn fyrir Ígló
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Rannsóknin var gerð í nóvember 2011. Meginmarkmið hennar var að skoða kauphegðun neytenda þegar kemur að barnafatakaupum ásamt því að kanna þekkingu þeirra á vörumerkinu Ígló og viðhorf gagnvart því.
    Niðurstöðurnar eru góð vísbending fyrir Ígló, um hvert næsta skref í markaðsaðgerðum gæti verið og stjórnendur fyrirtækisins ættu að geta byggt markaðslegar ákvarðanir að einhverju leyti á þeim.
    Í niðurstöðum kom fram að kaupendum finnst gæði vörunnar og verð skipta mestu máli við val á barnafötum, en vörumerkið og staðsetning verslunar minnstu máli. Mikið samspil virðist því vera milli gæða og verðs vörunnar. Einnig kom fram að hönnun vörunnar er eitthvað sem fyrirtækið ætti hugsanlega að einbeita sér að þegar kemur að því að aðgreina sig á markaði. Einnig kom fram að flestir kaupendur versla barnaföt í verslunarmiðstöðvum en fæstir í netverslunum.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til jan. 2014
Samþykkt: 
  • 19.3.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10955


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
hvernig-velur-tu-barnafot.pdf1.39 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna