Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10977
Í ritgerð þessari er leitast við að svara því hvort 1. gr. laga um söfnunarkassa nr. 73/1994 rúmast innan 33. gr. EES samningsins sem heimilar takmarkanir á frelsinu til að veita þjónustu yfir landamæri. Til að svara þessari spurningu er farið yfir dómaframkvæmd Evrópudómstólsins og EFTA dómstólsins og varpað verður ljósi á þær reglur sem miðað er við þegar skorið er úr um hvort löggjöf rúmist innan 52. gr. eða 33.gr. EES samningsins en þær eru efnislega samhljóma. Að lokum er lagt mat á það hvort 1. gr. laga um söfnunarkassa nr. 73/1994 rúmist innan 33. gr. EES samningsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS ritgerð Atli Freyr pdf.pdf | 674.33 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |