is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11011

Titill: 
  • Heimildir í íslenskri stjórnskipun til framsals ríkisvalds til alþjóðastofnana. Þróun EES-samningsins í átt að frekara framsali?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningurinn) er viðamesti alþjóðasamningur sem Ísland hefur gert og hefur hann haft mjög mikilvæg áhrif á þróun Íslands í alþjóðasamfélagi. EES-samningurinn er dýnamískur í þeim skilningi að hann er síbreytilegur og tekur breytingum í takt við þróun mála á sviði innri markaðarins.
    Í aðdraganda samningsins vöknuðu ýmis álitaefni um stjórnskipulegt gildi hans, meðal annars hvort fullgilding og lögleiðing hans væri heimil að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 óbreyttri. Var því hafist handa við að kanna hvort það framsal ríkisvalds sem fælist í samningnum væri stjórnskipulega heimilt. Um það voru mjög skiptar skoðanir, og eru enn.
    Í ritgerð þessari er leitast við að svara þeirri spurningu hvort gengið hafi verið of langt í framsali á ríkisvaldi þegar samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði var lögfestur hér á landi, og hvort þróun samningsins síðan þá standist íslensk stjórnskipunarlög.

Samþykkt: 
  • 12.4.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11011


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þróun EES-samningsins í átt að frekara framsali?.pdf381.53 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna