is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11033

Titill: 
  • Jafnræðisregla við úthlutun byggðakvóta
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Allt frá ómunatíð munu Íslendingar hafa nýtt sér þær auðlindir sem hafið hafði upp á að bjóða. Engar takmarkanir til veiða voru að finna og var aðgangur manna til veiða frjáls, enda voru stofnarnir stórir. Með aukinni útgerð minnkuðu þessir stofnar og leita varð lausna til að sporna við að ákveðnar tegundir yrðu ofveiddar. Fiskveiðistjórnunarkerfi var tekið upp með lagasetningu sem tók gildi 1984, en árið 1990 varð núverandi mynd fiskveiðistjórnunarkerfisins til, sbr nú lög nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Í þeim lögum er að finna heimild sjávarútvegsráðherra til að færa aflaheimildir til byggðalaga sem eiga á brattann að sækja. Um er að ræða byggðakvóta sem kemur fram í 10. gr. laganna.
    Markmiðið með þessari ritgerð er að rýna í ferli úthlutunar byggðakvótans ásamt því að skoða hvort jafnræðis sé gætt við úthlutunina sjálfa. Í fyrstu tveimur köflum ritgerðarinnar er vikið að setningu fiskveiðistjórnunarkerfisins ásamt setningu byggðakvótans. Í þriðja kafla ritgerðarinnar tekur við fræðileg umfjöllun á jafnræðisreglunni. Í fjórða kafla ritgerðarinnar verður farið í úthlutun byggðakvótans með hliðsjón af jafnræðisreglunni. Þá er nánar vikið að aðkomu sveitarstjóna við úthlutun, mat stjórnvalda og ákvörðunarvald ráðherra í þeim efnum. Einnig verður vikið að málsmeðferð við tillögur sveitarstjórna ásamt hlutverki Fiskistofu við úthlutunina. Niðurstöður verða svo dregnar saman í lok ritgerðarinnar.

Samþykkt: 
  • 13.4.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11033


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Dagbjört_Jónsdóttir.pdf221.11 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna