Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11042
Í október árið 2008 átti sér stað efnahagsáfall á Íslandi sem leiddi til hruns þriggja stærstu viðskiptabanka landsins. Áhlaup blasti við bankakerfinu og hætta var á því að greiðslukerfi landsins yrðu óvirk. Það var í miðjum hildarleiknum, þann 6. október 2008, að á Alþingi voru sett lög um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl. nr. 125/2008, svonefnd neyðarlög (skammstöfuð neyðl.), sem höfðu það að markmiði að veita stjórnvöldum víðtækar heimildir til þess að bregðast við þeirri stöðu sem komin var upp í fjármálakerfi landsins. Með 6. gr. neyðl. voru kröfur vegna innstæðna teknar fram fyrir aðrar almennar kröfur í bú fjármálafyrirtækja og gerðar að forgangskröfum sem njóta rétthæðar samkvæmt 1. mgr. 112. gr. laga um gjaldþrotaskipti nr. 21/1991 (skammstöfuð gþl.). Með þessari aðgerð tryggði ríkisvaldið innstæður á bankareikningum á kostnað annarra almennra kröfuhafa. Það er verkefni þessarar ritgerðar að kanna hvort setning 6. gr. neyðl. hafi falið í sér afturvirka lagasetningu. Einnig verður tekin til skoðunar túlkun meirihluta og minnihluta Hæstaréttar á lagagreininni samkvæmt hinum svokallaða neyðarlagadómi, þ.e. Hrd. 28. október 2011(340/2011) og niðurstaða Hæstaréttar svo borin saman við fyrri fordæmi réttarins.
Ritgerðin er þannig uppbyggð að í kafla 2 verður farið yfir einkenni afturvirkra laga og slík löggjöf skoðuð í tengslum við vernd eignarréttinda. Í kafla 3 verður fjallað um aðdraganda og setningu neyðarlaganna nr. 125/2008. Í kafla 4 er niðurstaða meirihluta og minnihluta Hæstaréttar í máli nr. 340/2011 rakin og greind. Í kafla 5 er umfjöllun um fyrri fordæmi Hæstaréttar varðandi afturvirkni laga. Í kafla 6 eru fyrri fordæmi Hæstaréttar borin saman við neyðarlagadóminn og í kafla 7 eru niðurstöður ritgerðarinnar raktar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sindri M Stephensen11apríl.pdf | 188.15 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |