Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11046
Í þessari ritgerð er mestu púðri eytt í að rannsaka inntak reglunnar um jafnræði málsaðila við meðferð einkamála og greina það í fjóra meginþætti. Einnig er lítillega fjallað um eðli reglunnar og gefið í skyn að hún sé af öðrum toga og mikilvægari en þær meginreglur aðrar sem fjallað er um í tengslum við einkamálaréttarfar við lagadeild Háskóla Íslands. Gyðju réttlætisins eru gerð nokkur skil og að lokum sett fram skilgreining sem ætlað er að fanga inntak reglunnar betur en skilgreiningar eldri fræðimanna hafa gert.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Birkir Blær.pdf | 242.36 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |