Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11058
Lokaverkefni þetta skiptist í tvo hluta, greinagerð og barnabók. Fyrri hlutinn fjallar um orðaforða, mikilvægi hans, kennsluaðferðir, hugtök og tilgang barnabókarinnar. Seinni hlutinn er síðan barnabókin sjálf. Hún byggist á að taka fyrir nokkur vel valin hugtök, en gert er grein fyrir þeim í greinagerðinni. Í greinagerðinni leitaðist ég eftir því að svara rannsóknarspurningu minni: Hvað er orðaforði og hvernig er hægt að auka hann? Ályktun mín er sú að orðaforði er eitt af undirstöðuatriðum í lestrarkennslu og því mikilvægt að lögð sé rík áhersla á að auka hann hjá börnum á leikskóla og grunnskólaaldri. Hægt er að auka orðaforðann með markvissri kennslu bæði í skólum og á heimilum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 366.8 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |