Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1105
Rannsóknarritgerð þessi er unnin fyrir Samfés, samtök félagsmiðstöðva á Íslandi. Markmið hennar er að kynna hugmyndafræði sem tengist stefnumótun og stefnumiðuðu árangursmati með það fyrir augum að greina og endurmeta starf Samfés, setja fram framtíðarsýn og útfæra hana í stefnu- og skorkorti. Eftirfarandi rannsóknarspurningar voru settar fram til að leiða vinnuna.
• Hvernig gagnast mótun stefnu og framtíðarsýnar Samfés við að gera starf samtakanna markvissara og skilvirkara?
o Hvernig geta félagsmiðstöðvar nýtt sér stefnumótunarvinnu Samfés?
o Hvernig hentar Stefnumiðað árangursmat lands- og regnhlífasamtökum eins og Samfés?
o Hvað hefur Samfés að sækja til annarra landssamtaka og hvernig er hægt að finna þær upplýsingar?
o Hvernig meta aðildarfélagar starf Samfés?
Helstu niðurstöður eru:
• Að Samfés hefur endurmetið starfið hjá samtökunum með hugmyndafræði stefnumótunar að leiðarljósi og sett fram metnaðarfulla en jafnframt raunhæfa framtíðarsýn og stefnu sem gerir starfið markvissara og skilvirkara.
• Að starf samtakanna er gegnsærra og öllum sem hagsmuna eiga að gæta er ljóst hvert er stefnt og hvernig er ætlað að ná þeim markmiðum.
• Að Samfés hefur tileinkað sér vinnubrögð sem gefur heildarsýn yfir starfsemina og eykur möguleikana á frekari framþróun innan samtakanna.
• Með skýrri framsetningu á framtíðarsýn og stefnu og vísun í fræðin er aðildarfélögum Samfés, þ.e. félagsmiðstöðvum fært í hendur tæki til að bæta eigið starf.
• Stefnumiðað árangursmat, þ.e. útfærsla stefnunnar í stefnu- og skorkortinu gerir öllum hagsmunaaðilum ljóst hvað Samfés ætlar sér í náinni framtíð og hvernig samtökin ætlar sér að ná sínum markmiðum. Skorkort er niðurstaða stefnumótunarvinnunnar og kemur til með að gefa til kynna hvernig til tekst.
• Mótandi samanburður gefur Samfés tækifæri á því að bera saman og skoða hvað önnur landssamtök eru að gera, hvort að það sé eitthvað í þeirra starfi, þ.e. verkefni, innra skipulag eða uppbygging starfseminnar, sem sé áhugavert fyrir Samfés.
• Aðildarfélagar þekkja vel til starfsemi Samfés og eru sammála um að samtökin eru að bjóða upp á og stuðla að gæðastarfi á vettvangi frítímans
Lykilorð: Stefnumótun, árangursstjórnun, Stefnumiðað árangursmat, stefnu- og skorkort og Mótandi samanburður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
samfes.pdf | 737.2 kB | Takmarkaður | Stefnumótun og skorkort Samfés - heild | ||
samfes_e.pdf | 148.48 kB | Opinn | Stefnumótun og skorkort Samfés - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
samfes_u.pdf | 90.91 kB | Opinn | Stefnumótun og skorkort Samfés - útdráttur | Skoða/Opna |