Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11062
Samningurinn um Evrópska efnahagsbandalagið hefur haft gríðarleg áhrif á íslenskt lagaumhverfi og réttarkerfi. Ein af þeim nýjungum sem var innleidd í íslenskan rétt með samningnum var heimild íslenskra dómstóla til að leita eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins um túlkun á EES reglum. Í þessari ritgerð verður fjallað um hversu bindandi slík álit eru samkvæmt EES- rétti, það er hvort íslenskum dómstólum sé skylt að fara eftir ráðgefandi álitum dómstólsins og því hægt að segja að ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins séu lagalega bindandi fyrir íslenska dómstóla. Umfjöllunin takmarkast að mestu við íslenska dómstóla, ekki verður farið yfir dómaframkvæmd í hinum EFTA-ríkjunum (sem eiga aðild að EES) Noregi og Lichtenstein, en sömu sjónarmið eiga við um réttarframkvæmdina í þeim löndum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Rögnvaldur Árni.pdf | 241.15 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |