Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11078
Viðfangsefni ritgerðarinnar er árangurstengd laun í fjármálafyrirtækjum og ástæður fyrir innleiðingu hvatakerfa ásamt kostum þeirra og göllum. Þá verða skoðaðar þær leiðir sem vænlegast er að fara við uppbyggingu nýrra hvatakerfa eftir hrun fjármálakerfisins, með tilvísun í nýja reglugerð Fjármálaeftirlitsins og alþjóðlegra fjármálasamtaka.
Markmiðið með rannsókninni er að skoða hvort hin nýja reglugerð Fjármálaeftirlitsins um hvatakerfi fjármálafyrirtækja stuðli að frekari fjármálastöðugleika.
Rannsóknarspurningin er: „Hver eru líkleg áhrif nýrra reglna um árangurstengd laun á fjármálakerfið á Íslandi.“
Til að svara rannsóknarspurningunni þá rýni ég í nýju reglugerðina með tilliti til fræðanna og sögunnar en þar sem engin reynsla er komin á þessa nýju reglugerð er ekki hægt að skoða raunáhrif hennar á fjármálakerfið.
Helstu niðurstöður eru þær að reglur Fjármálaeftirlitsins taka í megindráttum á þeim vandamálum sem fylgdu hvatakerfunum fyrir hrun. Þó er ýmislegt annað sem verður að hafa hugfast við uppbyggingu og hönnun á hvatakerfum þar sem þau eiga að þjóna hagsmunum allra er koma að fjármálafyrirtækjum landsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heidrun_Árangurstengd laun fjármálafyrirtækja breytt kerfi eftir hrun.pdf | 898.99 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |