is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11080

Titill: 
  • WikiLeaks og frelsi til upplýsinga. Rannsókn á umfjöllun þriggja íslenskra fréttavefmiðla um WikiLeaks
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • WikiLeaks samtökin hafa verið mjög áberandi í umræðunni um upplýsingafrelsi undanfarin ár og upplýsingalekar þeirra hafa vakið mikla athygli um allan heim. Þessi ritgerð er til BA gráðu í bóksafns- og upplýsingafræði og fjallar að mestu um eigindlega rannsókn sem gerð var á umfjöllun þriggja íslenskra fréttavefmiðla um WikiLeaks samtökin. Innihaldsgreining (e. content analysis) var sú rannsóknaraðferð sem notast var við í rannsókninni. Þeir fréttavefmiðlar sem skoðaðir voru í þessari rannsókn voru mbl.is, vísir.is og DV.is. Helstu niðurstöður voru þær að umfjöllunin á milli fréttavefmiðlanna þriggja var frekar svipuð þegar kemur að innihaldi hennar. Enginn af fréttavefmiðlunum þremur fjallaði sérstaklega og mikið um eitthvað tengt WikiLeaks sem hinir fréttavefmiðlarnir gerðu ekki. Hinsvegar var munur á því hve mikla áherslu fréttavefmiðlarnir lögðu á hin og þessi umfjöllunarefni tengd WikiLeaks.
    Ritgerðin fjallar einnig um upphaf, sögu og tilgang WikiLeaks samtakanna og gerir helstu upplýsingalekum þeirra skil. Fjallað er um þá gagnrýni sem samtökin hafa fengið á sig í þeim tilgangi að varpa ljósi á það viðhorf sem ríkir gagnvart samtökunum. Helstu fylgjendum upplýsingafrelsis sem tengjast WikiLeaks er jafnframt gerð skil.

Samþykkt: 
  • 25.4.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11080


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA_ritgerd_Kristjana_Mjoll_J_Hjorvar.pdf1.01 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna