Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11085
Í þessarri ritgerð er athugað hvort munur sé á trausti stuðningsmanna hægri og vinstri flokka til helstu stofnana og embætta á Íslandi. Einnig er skoðað hvernig traust hefur þróast í kjölfar efnahagshrunsins í október 2008 og hvar það stendur í febrúar árið 2012. Megintilgáta rannsóknarinnar er að kjósendur hægri flokka treysti almennt stofnunum samfélagsins betur en kjósendur vinstri flokka. Efnahagshrunið olli því að traust til flestra stofnana samfélagsins minnkaði en í ljósi þeirra kenninga sem greint er frá í inngangi, má reikna með að kjósendur hægri flokka séu fyrr en kjósendur vinstri flokka til þess að treysta stofnunum á nýjan leik. Þetta mun þó ekki eiga við um stofnanir sem eru beintengdar ríkisstjórninni. Helstu kenningar sem tilgátan byggir á eru kenningin um réttlætingu kerfisins sem er upprunnin úr félagslegri sálfræði og kenningar um pólitískt traust en sýnt er fram á tengingu réttlætingar kerfisins og trausts. Rannsóknin byggir á gögnum sem fengin voru frá Capacent Gallup en fyrirtækið kannar meðal almennings traust til helstu stofnana í febrúar ár hvert. Notast var við gögn úr rannsóknum frá árinu 2008, 2009 og 2012 en var t-prófi beitt til þess að athuga hvort marktækur munur væri á meðaltölum hægri og vinstri flokka. Tilgátan fékk nokkurn stuðning árið 2008, minni stuðning 2009 og átti ekki við árið 2012. Í ljós kom að hugsanlega tengja kjósendur allar stofnanir við ríkisstjórnina því traust stuðningsmanna vinstri flokka hefur aukist árið 2012 til allra stofnana, bæði pólitískra og ópólitískra. Traust mælist enn lágt í öllum flokkum og ljóst er að efnahagshrunið risti djúpt í viðhorf almennings til stjórnvalda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BAritgerd_HrefnaRosMatthiasdottir.pdf | 1.21 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Skráin er læst að beiðni Capacent Gallup. (Læst til 24.4.2015)