is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11107

Titill: 
  • Gegnsæi og árangursmælingar hjá Reykjavíkurborg. Eykur stefnumiðað árangursmat gegnsæi í stjórnsýslu sveitarfélaga?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari BA ritgerð er leitast við að svara þeirri spurningu hvort árangursstjórnunarkerfi eins og stefnumiðað árangursmat geti stuðlað að gegnsæi í stjórnsýslu sveitarfélaga. Reykjavíkurborg er skoðuð sérstaklega í þessu samhengi og með dæmum úr stjórnkerfi borgarinnar er reynt að varpa ljósi á þessa áhugaverðu spurningu.
    Helstu heimildir til grundvallar þessari rannsókn eru starfsáætlanir tiltekinna sviða og gögn úr þeim borin saman við málefnasamninga síðustu meirihluta í Reykjavíkurborg, ásamt ítarlegum viðtölum við Regínu Ástvaldsdóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra borgarstjóra, og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi borgarstjóra.
    Skoðuð eru skorkort á Leikskólasviði og Menningar- og ferðamálasviði og komist að því að þau endurspegla ekki þá stefnu sem sett er fram í málefnasamningum. Þá eru notendur kerfisins skoðaðir og því velt upp hvort þeir hafi gagn af þeim upplýsingum sem koma úr stefnumiðuðu árangursmati. Þar sést að notendurnir eru mjög misjafnir en hafa lítið gagn bæði af upplýsingum sem mæla ekki stefnuna sem raunverulega er við lýði og mælingum sem ekki mæla rétta þætti. Að lokum eru skorkort sviðanna tveggja skoðuð og komist að því að réttmæti þeirra upplýsinga sem þar koma fram er ekki nægjanlegt.
    Niðurstaðan er því sú að stefnumiðað árangursmat stuðlar ekki að gegnsæi í sveitarfélaginu Reykjavík ef marka má þau dæmi sem tekin eru.

Samþykkt: 
  • 27.4.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11107


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA_ritgerd_Kristin_Hrefna.pdf1.06 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna