Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11145
Tilgangur þessa verkefnis er að skoða hvaða merkingu framhaldsskólanemar
leggja í hugtökin jafnrétti og femínisma og hvaðan hugmyndirnar um þessi
hugtök koma. Einnig er skoðað hvort að munur sé á merkingu þeirra sem hafa
fengið fræðslu um hugtökin og þeirra sem ekki hafa fengið slíka fræðslu.
Rannsóknin er eigindleg og unnin út frá sjónarhorni femínismans en tekin voru
alls tíu viðtöl við sextán framhaldsskólanema, átta einstaklingsviðtöl og tvö
rýnihópaviðtöl. Viðtölin eru sérstaklega skoðuð þar sem rýnt er í afritaðan texta
viðtalanna og hugmyndir þátttakenda um jafnrétti og femínisma eru greindar.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þó jafnrétti og femínismi
séu náskyld hugtök virðist fólk horfa á þau með ólíkum hætti. Hugtakið jafnrétti
þykir þannig hafa jákvæðara yfirbragð en hugtakið femínismi. Flestir
þátttakendur sem ekki höfðu fengið fræðslu um hugtökin í skólanum byggðu
hugmyndir sínar um hugtökin á umræðum á netmiðlum, fjölmiðlum og úr
bíómyndum. Þá benda niðurstöður einnig til þess að eftir því sem nemendur hafi
fengið meiri fræðslu um femínismann því jákvæðari merkingu leggi þau í hann.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Jakobína Jónsdóttir.pdf | 1.15 MB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |