is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11205

Titill: 
  • Notkun viðskiptabanka á samfélagsmiðlum. Viðhorf viðskiptavina til samskipta í gegnum samfélagsmiðla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Til að nota megi samfélagsmiðla á árangursríkan hátt í markaðsstarfsemi fyrirtækja verða þau að hafa skilning á hugmyndafræði markaðsfræðinnar, en hún býður fyrirtækjum upp á aðferðir til markaðssetningar vörumerkja sinna á arðbæran og skilvirkan hátt. Til að varpa ljósi á hvernig íslenskir viðskiptabankar geta notað samfélagsmiðla sem tæki til markaðssetningar verða hugtökum markaðsfræðinnar gerð skil. Fyrst verður hugtakið „markaðsfræði“ skilgreint og svo verður sjónarhornið þrengt og athyglinni beint að undirhugtökum þess. Loks verða svo samfélagsmiðlar sem markaðssamskiptaleið skoðaðir í nærmynd.
    Í þessari ritgerð birtast einnig niðurstöður rannsóknar á viðhorfi nemanda Háskóla Íslands til samskipta við bankann sinn í gegnum samfélagsmiðla, og var áhugi þeirra til valdra samskipta- og þjónustuleiða kannaður.

Samþykkt: 
  • 30.4.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11205


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bs-ritgerð-Stefán-Jökull-Stefánsson-Final.pdf968.54 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Bs-ritgerð-Stefán-Jökull-Stefánsson-Efnisyfirlit.pdf49.51 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna