is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1120

Titill: 
  • Hvaða áhrif mun aukin útlán Íbúðalánasjóðs hafa á útlán banka og sparisjóða?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Íbúðalánasjóður býður upp á húsbréf sem árið 2003 og fram til fyrsta júlí 2004 bera um 5,1% vexti auk verðtryggingar og ríkisábyrgðar. Aðrar útlánastofnanir bjóða hærri innlenda vexti sem skýrist af hærri ávöxtunarkröfu þar sem lán þeirra eru ekki ríkistryggð. Fyrsta júlí mun Íbúðalánasjóður innleiða nýtt kerfi þar sem íbúðabréf í formi peningabréfa leysa húsbréfin af hólmi. Vextir íbúðabréfanna verða kunnir fyrirfram og munu afföll eða yfirverð húsbréfanna heyra sögunni til.
    Árið 2002 var hlutur Íbúðalánasjóðs um 78 prósent af langtíma útlánum til fasteignakaupa. Lífeyrissjóðirnir sáu um 17 prósent af fasteignalánunum og ráku svo bankar og sparisjóðir lestina með síðustu fimm prósentin. Ekki er hægt að aðgreina skammtíma útlán frá neyslulánum en bankar og sparisjóðir sjá að mestu um fjármögnun á þeim lánum. Nýlegri tölu um skiptingu lánahlutfalls liggja ekki fyrir.
    Fyrir liggur að hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækki ásamt lánahlutfalli. Ekki er þó ljós enn sem komið er hver hækkunin verður. Bankar og sparisjóðir hafa svarað fyrirhugaðri hækkun með lengingu lánstíma lána sinna, hækkun veðsetningarhlutfalls og lækkun vaxta sem þó eru hærri en vextir húsbréfa. Einnig bjóða þeir nú í auknum mæli upp á óveðtryggð lán í erlendri mynnt og eru vextir þeirra lána lægri en vextir innlendra fasteignalána.
    Helsta niðurstaða verkefnisins er að hækkun hámarkslána og lánshlutfalls Íbúðarlánasjóðs muni draga úr innlendum útlánum banka og sparisjóða þar sem vextir þeirra eru hærri en vextir Íbúðalánasjóðs. Einhver hluti fólks mun þó leita í erlend lán hjá bönkum og sparisjóðunum og mun það vega upp á móti samdrætti í innlendum útlánum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1120


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
utlanILS.pdf563.83 kBTakmarkaðurHvaða áhrif mun aukin útlán Íbúðalánasjóðs hafa á útlán banka og sparisjóða? - heildPDF
utlanILS_e.pdf149.04 kBOpinnHvaða áhrif mun aukin útlán Íbúðalánasjóðs hafa á útlán banka og sparisjóða? - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
utlanILS_h.pdf158.89 kBOpinnHvaða áhrif mun aukin útlán Íbúðalánasjóðs hafa á útlán banka og sparisjóða? - heimildaskráPDFSkoða/Opna
utlanILS_u.pdf92.73 kBOpinnHvaða áhrif mun aukin útlán Íbúðalánasjóðs hafa á útlán banka og sparisjóða? - útdrátturPDFSkoða/Opna