is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11238

Titill: 
  • Staða kvenna í sunnanverðri Afríku: Heilsa, valdefling og atvinnuþátttaka
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Bág staða kvenna og ójafnrétti kynjanna er útbreitt vandamál í heiminum í dag og hefur sett mark sitt á þróun landa svo áratugum skiptir. Þó svo að þessi þættir hafi batnað á ýmsum sviðum, þá er enn langt í land ef jafnrétti kynjanna á að verða að veruleika. Í þessari ritgerð er fjallað um stöðu kvenna í sunnanverðri Afríku, nánar tiltekið kvenna í aðildarríkjum Efnahagsbandalags sunnanverðrar Afríku (SADC), og byggir umfjöllunin á tölfræði sem spannar 20 ára tímabil (1990-2010) á gögnum í þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna. Tölfræðin sem notast var við snýr að ákveðnum mæliþáttum, sem varða heilsu, valdeflingu og atvinnuþátttöku kvenna, en þessir þættir eru að öllu jöfnu taldir segja mikið til um þann ójöfnuð og þá þróun sem á sér stað í hverju landi fyrir sig. Með því að skoða tölfræðina var reynt að spá fyrir um orsakir þeirrar þróunar sem á sér stað, kynna sér markmið bæði alþjóðasamfélagsins og landanna í þessum hluta álfunnar, leggja á mat á þau úrræði sem í boði eru og rýna í framtíðina.

Samþykkt: 
  • 2.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11238


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hjálmar Karlsson BA leiðrétt.pdf504.99 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna