is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11255

Titill: 
  • Fjölþætting í íslenskum vöruútflutningi: Áhrif breytinga greind með hjálp fjármálafræðinnar
  • Titill er á ensku Export Diversification in Iceland: A Modern Portfolio Theory Approach
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Mikilvægi útflutningsgreina Íslendinga hefur komið greinilega í ljós undanfarin ár í kjölfar alþjóðlegu fjármálakreppunnar árið 2008. Í endurreisn efnahags landsins hefur sjávarútvegur gegnt stóru hlutverki, en ekki síður áliðnaður sem hefur byggst hratt upp síðustu áratugi. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna áhrif aukinnar álframleiðslu á sveiflur í vexti útflutningstekna á Íslandi, með notkun kenninga Harry Markowitz um fjármálasöfn og kanna hversu hagkvæm samsetning útflutningsgreina er hérlendis í því tilliti. Enn fremur er ætlunin að kanna fjölþættingarstig útflutnings (e. export diversification) hér á landi, en hagfræðingar hafa sýnt fram á tengsl milli hagvaxtar og fjölbreytni í vöruútflutningi. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að við gefnar útflutningsgreinar er samsetning þeirra hér á landi nokkuð hagkvæm, samanborið við rannsóknir á öðrum löndum. Aukin álframleiðsla frá aldamótum er þó til þess fallin að auka sveiflur í útflutningstekjum og hefur minnkað fjölþættingu í íslenskum vöruútflutningi.

Samþykkt: 
  • 2.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11255


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Haukur Már Gestsson BA.pdf1.4 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna