Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1126
Þessi skýrsla fjallar um stöðu fersks eldislax á íslenskum neytendamarkaði. Sú rannsókn sem liggur til grundvallar þessari skýrslu er fjórþætt og byggist á gagnaöflun, viðtölum, rýnihópum og netkönnun. Gagnaöflunin var víðtæk og var safnað saman upplýsingum um eldi, vinnslu, markaðsmál, neyslu og framleiðslutölur. Tekin voru viðtöl við níu aðila sem tengdust framleiðslu og sölu á eldislaxi. Tveir rýnihópar með húsmæðrum voru myndaðir, einn í Reykjavík og annar á Akureyri. Netkönnun var gerð þar sem 134 aðilar svöruðu 15 spurningum en beiðni um þátttöku var send á 229 aðila.
Tilgangur skýrslunnar var að athuga hvort grundvöllur væri fyrir aðila í fiskeldi að hefja markaðssetningu á ferskum eldislaxi, og þá finna út hver markhópurinn væri og með hvaða hætti væri best að ná til hans.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er vænlegt fyrir aðila í laxeldi að fara út í markaðssetningu á innanlandsmarkaði, ekki síst í ljósi þess að þessir aðilar eru nú þegar í flestum tilvikum að vinna í markaðssetningu erlendis eða í tengslum við erlenda aðila. Aukin framleiðsla á innanlandsmarkað yrði góð viðbót, auk þess sem innan fyrirtækja byggðist upp þekking á framleiðslu og markaðsmálum.
Gróflega má skipta neytendum í tvo hópa. Annarsvegar eru það hinir eldri og íhaldsömu sem vilja þverskorinn lax í soðið og hinsvegar hinir yngri sem vilja laxinn flakaðan og beinlausan á grillið, pönnuna eða í rétti. Höfða skal til þess síðarnefnda og afmarka sig við markhóp sem er 30-40 ára fjölskyldufólk. Þróa þarf núverandi markað og skapa í framhaldinu vörumerkjavitund áður en farið verður í markaðssetningu á laxi í neytendapakkningum. Að festa vöru í sessi mun taka nokkur ár. Þörf er á þolinmóðu fjármagni til að standa straum af óhagkvæmni nýs og lítils markaðar og til þess að verja markaðshlutdeild fyrir eftirhermum.
Lykilorð: eldislax, markaðsrannsóknir, markaðssetning, innanlandsmarkaður, vörumerki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
eldislax.pdf | 650.1 kB | Takmarkaður | Ferskur eldislax á heimamarkaði - heild | ||
eldislax_e.pdf | 86.05 kB | Opinn | Ferskur eldislax á heimamarkaði - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
eldislax_h.pdf | 138.38 kB | Opinn | Ferskur eldislax á heimamarkaði - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
eldislax_u.pdf | 88.36 kB | Opinn | Ferskur eldislax á heimamarkaði - útdráttur | Skoða/Opna |